Sendill býður upp á veflausn fyrir einfaldar tímaskráningar, sem við köllum Einyrkjakerfið. Með einföldum hætti er hægt að skrifa út tímaskýrslu og senda reikning til móttakanda út frá skráningunum.
Lausnin hentar vel einyrkjum og minni fyrirtækjum sem nota ekki bókhaldskerfi. Ef þú ert með endurskoðanda eða bókara sem sjá um bókhaldið fyrir þig og þú gefur reikningana út sjálfur, þá er þetta tilvalin lausn fyrir þig.
Stillirðu upp tímaskýrslum í Excel?
Ertu vanur/vön að nota Excel eða Word til að setja upp reikningana þína og prentar þá svo út í þríriti til að uppfylla reglur um reikninga í tengslum við virðisaukaskatt? Ef svo er, þá er miklu hægara um vik að prenta þá beint út úr kerfinu okkar.
Í byrjun þarftu aðeins að setja upp upplýsingar um viðskiptavini þína, skilgreina þá forða sem þú notar og byrjar að skrá tímana. Um mánaðarmótin umbreytirðu skráðum tímum yfir í reikning og prentar hann út á fornúmeraða reikninga.
Einnig getur þú skráð lista yfir vörur sem þú selur og notað þær upplýsingar til að setja upp reikningana. En það er líka óþarft því þú getur fyllt út í reikningana eins og þú kýst.
Frí útgáfa
Þetta er meðal þess sem Einyrkjakerfið okkar býður upp á. Vonandi hentar það þér. Þú getur notað það frítt fyrir allt að þrjá viðskiptavini. Hafir þú fleiri viðskiptavini eða umfangsmeiri starfssemi en innifalin er í fría pakkanum, bjóðum við stærri útgáfur á hagstæðu mánaðarverði, sjá Einyrkjavefur, pakkar og verð.