Samstarfsaðilar  >  Eftir nafni endursöluaðila  >  Maritech
Maritech

Maritech lógóMaritech er söluaðili Microsoft Dynamics NAV á Íslandi og er í fararbroddi í upplýsingatækni með sérstaka áherslu á ráðgjöf, hugbúnaðargerð og innleiðingu hugbúnaðar ásamt öflugri og persónulegri þjónustu. Fyrirtækið var upphaflega stofnað árið 1995 og hefur þróast yfir í að vera stærsti söluaðili Microsoft Dynamics NAV á Íslandi. 

Hjá Maritech starfa rúmlega 80 manns og er aðalskrifstofan í nýju og glæsilegu húsnæði að Borgartúni 26, Reykjavík. Maritech er einnig með starfsstöðvar á Akureyri.

Innan Maritech starfar öflugur hópur sérfræðinga með áralanga reynslu í Microsoft lausnum. Starfsfólk Maritech hefur það að leiðarljósi að veita viðskiptavinum góða og trausta þjónustu ásamt faglegri ráðgjöf.

Maritech hefur meðal annars sérhæft sig í viðskiptahugbúnaði á sviði fjármála, þjónustu, sveitarfélaga, flutninga, heildsölu og verslunar fyrir Microsoft lausnir.

Traustar og góðar lausnir og áralöng reynsla starfsfólks Maritech tryggir viðskiptavinum samkeppnisforskot.

Rafræn miðlun reikninga

Maritech býður upp á miðlun rafrænna reikninga í samvinnu við Sendil sem gerir lausnina hentuga fyrir stofnanir og fyrirtæki óháð stærð.

Fyrirtækjum gefst kostur á að senda reikninga til viðskiptavina sinna á rafrænu formi ásamt því að taka á móti þeim inn í NAV, en í því felst mikill sparnaður og hagræðing.

Helstu kostir rafrænnar miðlunar reikninga: 

  • Beinn sparnaður og hagræðing
  • Sparnaður við skráningu og bókun reikninga
    • Lægri kostnaður við afstemmingar og villuleit
    • Skönnun reikninga mun heyra sögunni til
    • Reikningar eru alltaf eins bókaðir
    • Enginn pappír
    • Bókhaldið uppfærist fyrr
  • Reikningarnir uppfylla skilyrði RSK um löggilda rafræna reikninga (reglugerðir 50/1993 & 598/1999)

Með rafrænni miðlun reikninga verður áreiðanleiki og rekjanleiki meiri:

  • Betri yfirsýn
  • Engar innsláttarvillur
  • Möguleg stytting á innheimtuferli
  • Hraðara sjóðsstreymi
  • Reikningar berast strax
  • Sendandi fær staðfestingu um móttöku reiknings

Fjöldi fyrirtækja og stofnana nýta sér rafræna miðlun reikninga og bætast stöðugt fleiri í hópinn þar sem um mikla hagræðingu og tímasparnað er að ræða. Hagkvæm og einföld lausn sem tryggir þér samkeppnisforskot.    

 

Tengiliðir
Sölumál
Björn Þórhallson
Sími 545-3200
Heim  |  Lausnir  |  Vörur og þjónusta  |  Samstarfsaðilar  |  Um Sendil  |  Hafðu samband
Höfundarréttur (c) 2010, Unimaze á Íslandi ehf   |  Privacy Statement  |  Terms Of Use